Um hönnuðinn:
Fjóla María lærði tösku og skóhönnun í Milano. Fjóla lauk MBA-námi í alþjóðaviðskiptum árið 2003 í Skotlandi , áður hafði hún lokið námi í raunvísindum frá HÍ. Fjóla hefur frá unga aldri skapað og hannað skartgripi, mósaíkverk og föt.
Um fyrirtækið frá Fjólu:
Í MBA náminu spratt upp sú hugmynd að virkja sköpunarþörf mína og viðskiptamenntun og hanna tölvutöskur en ég sá að úrvalið af þeim var ekki mikið. Tölvutöskur, sem hafa verið í boði fyrir konur, eru oft karlalegar og hannaðar með hagkvæmnissjónarmið í huga frekar en fagurfræðileg. Mig langaði til að hanna tösku sem væri bæði hagnýt og falleg. Íslenska roðið varð fyrir valinu sem hráefni í töskurnar en það er einstakt efni sem einungis er unnið á Íslandi. Fyrirtækið Fjolamariadesign var stofnað í apríl 2007 og hófst framleiðsla á einu módeli af töskum haustið 2007 en þá hafði ég náð samningi við framleiðslufyrirtæki. Framleiðslufyrirtækið sérhæfir sig í tölvutöskum svo allir öryggisstaðlar eru uppfylltir og þannig tryggt að tölvan skemmist ekki í töskunni.
Hönnunin:
Tölvutaskan er þannig hönnuð að hún nýtist sem veski, skjalataska og tölvutaska. Fólk er í sífellt meira mæli farið að taka tölvurnar með sér hvert sem það fer og ferðatölvur eru sífellt að léttast og minnka. Tölvan er að verða fylgihlutur eins og gemsinn og þá er gott að eiga fallega tölvutösku.
Taskan setur punktinn yfir i-ið þegar kemur að heildaútlitinu og því ekki ónýtt að geta sameinað skjölin, snyrtivörurnar, peningaveskið, símann og tölvuna í einni glæsilegri tösku.
Hvar fást töskurnar:
Töskurnar eru til sölu í Kraum í Aðalstræti og í Epal í flugstöðinni.
Á döfinni:
Töskurnar verða brátt seldar í Hrím hönnunarverslurn í Hofi á Akureyri


